Psalms 42

1Til söngstjórans. Kóraítamaskíl. 2Eins og hindin, sem þráir vatnslindir, þráir sál mín þig, ó Guð. 3Sál mína þyrstir eftir Guði, hinum lifanda Guði. Hvenær mun ég fá að koma og birtast fyrir augliti Guðs? 4Tár mín urðu fæða mín dag og nótt, af því menn segja við mig allan daginn: ,,Hvar er Guð þinn?`` 5Um það vil ég hugsa og úthella sál minni, sem í mér er, hversu ég gekk fram í mannþrönginni, leiddi þá til Guðs húss með fagnaðarópi og lofsöng, með hátíðaglaumi. 6Hví ert þú beygð, sál mín, og ólgar í mér? Vona á Guð, því að enn mun ég fá að lofa hann, hjálpræði auglitis míns og Guð minn. 7Guð minn, sál mín er beygð í mér, fyrir því vil ég minnast þín frá Jórdan- og Hermonlandi, frá litla fjallinu. 8Eitt flóðið kallar á annað, þegar fossar þínir duna, allir boðar þínir og bylgjur ganga yfir mig. 9Um daga býður Drottinn út náð sinni, og um nætur syng ég honum ljóð, bæn til Guðs lífs míns. 10Ég mæli til Guðs: ,,Þú bjarg mitt, hví hefir þú gleymt mér? hví verð ég að ganga harmandi, kúgaður af óvinum?`` 11Háð fjandmanna minna er sem rotnun í beinum mínum, er þeir segja við mig allan daginn: ,,Hvar er Guð þinn?`` [ (Psalms 42:12) Hví ert þú beygð, sál mín, og ólgar í mér? Vona á Guð, því að enn mun ég fá að lofa hann, hjálpræði auglitis míns og Guð minn. ]
Copyright information for Icelandic